Velkomin á Írska menningarhátíð!

Það verður sannkölluð írsk veisla hjá okkur Kópavogsbúum í október þegar við höldum Írska menningarhátíð. Hátíðin stendur yfir frá 2. til 11. október og verður ýmislegt í boði fyrir alla fjölskylduna. Til okkar kemur hinn heimsþekkti RAGÚS hópur sem syngur og dansar að írskum sið, þrjár málverkasýningar verða í Gerðarsafni, fiðlusnillingarnir FIDIL koma fram í Salnum, boðið verður upp á ljóðakvöld, stuttmyndir, fræðslukvöld og margt fleira.

image image